Fjölskyldudagur Calidris
júní 6th, 2008 by Unnur Björk
Hinn árlegi fjölskyldudagur Calidris var haldinn á miðvikudaginn í Grenilundi, Heiðmörk. Veðrið lék við okkur því þó það væri hvasst fyrir utan lundinn þá var skjólsælt innan hans og hitinn um 16 stig. Þarna var farið í ýmsa leiki, grillaðar pylsur og brauð og sykurpúðar á greinum. Stórstjarnan Stígur úr Stundinni okkar mætti á svæðið við mikla lukku yngri kynslóðarinnar og fór í leiki með krökkunum. Þegar klukkan var rétt að verða átta tókst mér að draga börnin mín í bílinn en þurfti þó fyrst að sannfæra Elísu margoft um að Stígur væri líka á leiðinni heim. Hún var aldrei meira en í metersfjarlægð frá honum.
Hlynur aftur á móti fór alveg í kúk og kleinu við að sjá stórstjörnuna og þorði ekki að koma nálægt honum, a.m.k. ekki án þess að ríghalda í mig og gera tilraun til að skríða inn í mig á nýjan leik. Honum þótti þetta samt vissulega spennandi en fannst öruggara að vera bara í frisbíleik með mömmu.
Hér eru nokkrar myndir frá þessum skemmtilega degi:
Að lokum vil ég endilega koma því á framfæri að Calidris var í fyrsta sæti í sínum flokki í fjölda kílómetra í “Hjólað í vinnuna” sem lauk fyrir tveim vikum síðan og í þriðja sæti í fjölda daga. Calidris var jafnframt á toppnum í fjölda kílómetra af öllum fyrirtækunum sem tóku þátt í ár. Verðlaunaafhending fór fram í Húsdýragarðinum í síðustu viku þar sem stoltir fulltrúar Calidris tóku við skjöldunum tveimur. Við erum verulega montin með árangurinn eins og gefur að skilja.